Hálendiskort sem virkar án nets
Stikan Map er íslenskt hálendis- og ferðakort fyrir síma. Kortin eru geymd á tækinu, svo þau virka þar sem ekkert símasamband er.
Í beta-prófun · væntanlegt á iOSAllt landið án nets
Kort, örnefni, leit og leiðarval eru á tækinu sjálfu. Ekkert hættir að virka þegar sambandið dettur út, hvorki uppi á heiði né inni í dal.
Færð og veður á einu korti
Færð Vegagerðarinnar og veður og viðvaranir Veðurstofunnar saman á kortinu. Síðustu gögn fylgja með upp á hálendið, merkt með tíma.
Gert fyrir hálendið
F-vegir aðeins ef þú velur þá, vöð merkt, örnefni úr IS 50V og landslag og skálar í 3D.
Skjámyndir
Skjámyndir úr appinu (iPhone, beta-útgáfa).









Hvað gerir appið?
- Kort án netsLandakort og götukort á tækinu, með leit að örnefnum, bæjum, götum og skálum án nets.
- ÖrnefniÖrnefni úr IS 50V í flokkum (fjöll, dalir, jöklar, vötn o.fl.) sem má kveikja og slökkva á.
- VeðurMælingar á veðurstöðvum Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar, staðaspár og veðurkort með spá næstu daga.
- Færð og viðvaranirFærð á vegum, vegavinna og atvik frá Vegagerðinni og veðurviðvaranir Veðurstofunnar.
- Leiðarval og leiðsögnLeið reiknuð á tækinu, F-vegir aðeins ef þú velur þá, vöð merkt. Beygjur og færð framundan á leiðinni (engin rödd).
- FerlarTaktu upp feril meðan appið er opið og deildu honum sem GPX-skrá.
- 3D-landslagÞrívítt landslag úr hæðarlíkani LMÍ (á iOS).
- Í neyðHnitin þín í tugabroti og gráðum/mínútum og hnappur sem hringir í 112.
Síðustu veður- og færðargögn eru geymd á tækinu og sýnd með tíma þegar netið vantar. Appið er á íslensku og ensku.
Fyrirvarar
Stikan Map er ekki öryggistæki. Kortið er til leiðbeiningar. Aðstæður á hálendinu breytast hratt; kynntu þér færð, veður og lokanir áður en lagt er af stað og fylgstu með aðstæðum sjálf(ur) á leiðinni.
Jöklar og sprungur: sprungusvæði á kortinu eru leiðbeinandi, ekki trygging fyrir öruggri leið. Farðu ekki á jökul án þekkingar, búnaðar og leiðsagnar.
Færð og veður: gögnin koma frá Vegagerðinni og Veðurstofunni og geta verið röng, gömul eða ekki náð til staðbundinna aðstæðna. Án nets sýnir appið síðustu gögn sem náðust, með tíma.
Vöð: vöð á kortinu eru úr OpenStreetMap. Vatnsmagn breytist eftir veðri, árstíma og tíma dags. Metið hvert vað á staðnum.
Leiðarval: leiðin er reiknuð úr opnum gögnum og getur legið um lokaða, ófæra eða ranga vegi. Fylgdu alltaf merkingum og lokunum á staðnum.
Staðir: staðsetning skála og tjaldsvæða er úr OpenStreetMap. Athugaðu aðgengi og leyfi áður en þú ferð.
Í neyð: hringdu í 112.
Heimildir og leyfi
- Kortagrunnur og vegakerfi: götukort, vegir, götuheiti og staðir © OpenStreetMap contributors (ODbL) · Kortastíll © Protomaps (BSD)
- Landupplýsingar (IS 50V): jöklar, slóðar, örnefni, bæir, ár, vötn, hæðarlínur og sveitarfélagamörk © Náttúrufræðistofnun / Landmælingar Íslands (CC BY 4.0)
- Hæðarlíkan: ÍslandsDEM © Landmælingar Íslands (CC BY 4.0)
- Landgerðir: CORINE Land Cover 2024 © European Union, Copernicus Land Monitoring Service
- Veður og viðvaranir: veðurathuganir, staðaspár og viðvaranir frá Veðurstofu Íslands (CC BY 4.0). Birtar á korti í appinu; Veðurstofan ber ekki ábyrgð á þeirri vinnslu.
- Færð og veður á vegum © Vegagerðin (CC BY 4.0)
Leyfin: ODbL · CC BY 4.0. Stikan Map tengist ekki þessum stofnunum og er ekki á þeirra vegum.
Samband
Spurningar, villur eða ábendingar: himminn@gmail.com
Á þessari vefsíðu eru engar vafrakökur, engin rakning og engin eyðublöð.