Stikan Map

Persónuverndarstefna

Gildir frá 14. nóvember 2026 · á við appið Stikan Map og þessa vefsíðu

Í stuttu máli: Stikan Map safnar engum persónuupplýsingum. Staðsetning þín er aðeins notuð á tækinu þínu. Ferlar, stillingar og leitarsaga eru aðeins geymd á tækinu. Í appinu er engin innskráning, engar auglýsingar, engin greining (analytics) og engin villuskráning sem send er til okkar.

Staðsetning

Appið biður um aðgang að staðsetningu aðeins meðan appið er opið. Hún er notuð til að sýna þig á kortinu, taka upp feril, reikna leið frá þér, leiðsegja og sýna hnitin þín í neyðarspjaldinu. Appið notar ekki staðsetningu í bakgrunni.

Staðsetningin er unnin á tækinu og fer hvergi annað. Hún er ekki send til okkar né til þeirra þjónusta sem appið sækir gögn frá (sjá hér að neðan). Þú getur hafnað eða afturkallað aðganginn hvenær sem er í stillingum tækisins; kortið virkar áfram án hans.

Gögn sem geymd eru á tækinu

Við höfum engan aðgang að þessum gögnum. Þau eyðast þegar þú eyðir þeim í appinu eða fjarlægir appið. Ef þú tekur afrit af tækinu (t.d. Google- eða iCloud-afrit, eða í tölvu) geta þau fylgt afritinu samkvæmt þínum stillingum hjá Google eða Apple.

Gögn sem appið sækir af netinu

Þegar net er til staðar sækir appið opinber gögn beint frá eftirfarandi aðilum, á 15–30 mínútna fresti meðan appið er opið og aldrei í bakgrunni. Beiðnirnar innihalda hvorki staðsetningu þína né neitt sem auðkennir þig. Eins og við allar netbeiðnir sjá þessir þjónar IP-tölu tækisins; um það gilda skilmálar og persónuverndarstefnur þeirra.

AðiliGögnÞjónn
Veðurstofa ÍslandsVeðurathuganir, veðurstöðvar, staðaspár, veðurviðvaranirapi.vedur.is, xmlweather.vedur.is
VegagerðinFærð, vegavinna og atvik, veður á vegumgagnaveita.vegagerdin.is

Kortin sjálf, örnefni, leit og leiðarval eru á tækinu og nota ekkert net.

Þegar þú velur að fara út úr appinu

Beta-prófun

Ef þú prófar appið í gegnum Google Play (prófunarrás) eða TestFlight getur Google eða Apple safnað upplýsingum um tækið, hrunskýrslum og athugasemdum sem þú sendir sjálf(ur), samkvæmt eigin skilmálum, og deilt hluta þeirra með útgefanda appsins til að laga villur. Stikan Map sjálft sendir ekkert slíkt.

Þessi vefsíða

Vefsíðan notar engar vafrakökur, enga rakningu, engar greiningar og engin eyðublöð. Hún er hýst hjá Cloudflare, sem vinnur IP-tölur og tæknilegar upplýsingar til að afhenda síðuna og verja hana.

Börn

Appið safnar engum upplýsingum, hvorki frá börnum né fullorðnum.

Breytingar

Ef appið breytist þannig að þessi stefna á ekki lengur við verður hún uppfærð hér, með nýrri dagsetningu, áður en breytingin tekur gildi.

Samband

Stikan Map er gefið út af einstaklingi á Íslandi. Spurningar um persónuvernd: himminn@gmail.com. Þú getur einnig leitað til Persónuverndar.